Listabókstafir stjórnmálasamtaka

Samkvæmt kosningalögum skal dómsmálaráðuneytið halda skrá um listabókstafi stjórnmálaflokka og ákveða bókstaf nýrra samtaka að fengnum óskum þeirra, með hliðsjón af listabókstöfum annarra stjórnmálasamtaka í undangengnum kosningum. Þó að stjórnmálaflokkar eða samtök hafi fengið úthlutað listabókstaf er það ekki formleg tilkynning um framboð. Landskjörstjórn auglýsir framboðslista eigi síðar en 20. apríl 2009.

Dómsmálaráðuneytið auglýsti 23. febrúar síðastliðinn hvaða stjórnmálaflokkar og samtök buðu fram í síðustu kosningum og eru það eftirtaldir:

  • B-listi Framsóknarflokkurinn
  • D-listi Sjálfstæðisflokkurinn
  • F-listi   Frjálslyndi flokkurinn
  • I-listi   Íslandshreyfingin
  • S-listi   Samfylkingin
  • V-listi  Vinstrihreyfingin – grænt framboð

Í dag, 20. mars, höfðu þrenn stjórnmálasamtök að auki fengið skráðan listabókstaf og fengið senda tilkynningu þar um:

  • A-listi  Framfaraflokkurinn
  • L-listi  Samtök um framboð til Alþingis
  • O-listi  Borgarahreyfingin

Fleiri aðilar hafa óskað eftir listabókstaf og eru þær beiðnir í vinnslu. Ráðuneytið mun auglýsa þá um leið og ákvörðun liggur fyrir.

Sjá nánar hér.




Þetta vefsvæði byggir á Eplica