Framlagning kjörskráa

Kjörskrár vegna kosninga til Alþingis, sem fram eiga að fara laugardaginn 25. apríl 2009, skulu lagðar fram eigi síðar en föstudaginn 17. apríl 2009.

Kjörskrá skal leggja fram á skrifstofu sveitarstjórnar eða á öðrum hentugum stað sem sveitarstjórn auglýsir sérstaklega. Kjörskrá skal liggja frammi á almennum skrifstofutíma til kjördags.

Þeim sem vilja koma að athugasemdum við kjörskrá er bent á að senda þær hlutaðeigandi sveitarstjórn. Athygli er vakin á því að sveitarstjórn getur allt fram á kjördag gert leiðréttingar á kjörskrá, ef við á.

Dóms- og kirkjumálaráðuneytið, 8. apríl 2009.




Þetta vefsvæði byggir á Eplica