Tilkynning frá landskjörstjórn um lista sem verða í framboði við alþingiskosningarnar 25. apríl 2009

Á fundi landskjörstjórnar kl. 15.00 í dag, föstudaginn 17. apríl, var í samræmi við 44. gr. laga um kosningar til Alþingis gert kunnugt um þá lista sem verða í bornir fram í alþingiskosningunum 25. apríl næst komandi.

Eftirtaldir listar verða bornir fram í öllum kjördæmum landsins við komandi alþingiskosningar:

B-listi borinn fram af Framsóknarflokknum.

D-listi borinn fram af Sjálfstæðisflokknum.

F-listi borinn fram af Frjálslyndaflokknum.

O-listi borinn fram af Borgarahreyfingunni – Þjóðin á þing.

P-listi borinn fram af Lýðræðishreyfingunni.

S-listi borinn fram af Samfylkingunni.

V-listi borinn fram af Vinstri hreyfingunni – grænu framboði.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica