Greiðslur til sveitarfélaga vegna kosninga til Alþingis 25. apríl 2009
Með 14. gr. laga nr. 162 21. desember 2006 var ákveðið að greiða skuli úr ríkissjóði kostnað sem sveitarfélög bera af kosningum til Alþingis við störf undirkjörstjórna og kjörstjórna, og fyrir kjörgögn, áhöld, húsnæði til kjörfunda og atkvæðiskassa, eins og rakið er í c-lið 123. gr. laga um kosningar til Alþingis nr. 24/2000.
Ákveðið var að greiða fyrir þátt sveitarfélaganna við alþingiskosningarnar 25. apríl síðastliðinn sem hér greinir:
- Fyrir hvern kjósanda á kjörskrá, eins og staðan var í lok kjördags, 476 krónur, sbr. 2. mgr. 24. gr. og 4. mgr. 27. gr. laga nr. 24/2000.
- Fyrir hvern kjörstað sem sveitarstjórn ákvað, 353.300 krónur, sbr. 1. mgr. 68. gr. laga nr. 24/2000.
Uppgjör á kostnaði sveitarfélaga vegna kosninganna fer fram þegar dóms- og kirkjumálaráðuneytinu hafa borist upplýsingar um fjölda kjósenda á kjörskrá í lok kjördags og fjölda kjörstaða í hverju sveitarfélagi, staðfestar af kjörstjórn sveitarfélagsins.
