Kjördæmi

Kjördæmi

Kjördæmi við þjóðaratkvæðagreiðslu eftir 26. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944.

Kjördæmi

Kosið er eftir kjördæmaskipan þeirri sem samþykkt var með stjórnarskrárbreytingu árið 1999. Þá var ákveðið að hafa kjördæmi fæst sex en flest sjö, og horfið frá fyrri stefnu um að kjördæmin væru átta talsins. Miðaði breytingin að því að draga úr misvægi atkvæða og laga hana að þróun búsetu í landinu. Í kjölfar þessara breytinga var lögum um kosningar til Alþingis frá árinu 2000 breytt til samræmis við stjórnarskrána og var kjördæmum þar fækkað úr átta í sex. Þrjú þessara sex kjördæma eru á landsbyggðinni og þrjú á höfuðborgarsvæðinu.

Norðvesturkjördæmi
Kjördæmið nær frá Akraneskaupstað til Akrahrepps.

Norðausturkjördæmi
Kjördæmið nær frá Fjallabyggð til Djúpavogshrepps.

Suðurkjördæmi
Kjördæmið nær frá sveitarfélaginu Hornafirði til sveitarfélagsins Voga.

Suðvesturkjördæmi
Kjördæmið nær yfir Hafnarfjarðarkaupstað, Garðabæ, Kópavogsbæ, Sveitarfélagið Álftanes, Seltjarnarneskaupstað, Mosfellsbæ og Kjósarhrepp.

Reykjavíkurkjördæmi suður og norður
Frá vestri til austurs skiptir Hringbraut, Miklabraut, Ártúnsbrekka og Vesturlandsvegur kjördæmunum þar til komið er að punkti á móts við Sóltorg í Grafarholti. Grafarholtshverfi skiptist  áfram milli suður- og norðurkjördæmis um Kristnibraut og Gvendargeisla og Ingunnarskóli verður  kjörstaður fyrir bæði kjördæmin í Grafarholti. Kjalarnes tilheyrir síðan Reykjavíkurkjördæmi norður. Sjá auglýsingu frá landskjörstjórn Í Stjórnartíðindum um mörk kjördæma í Reykjavík fyrir alþingiskosningarnar 25. apríl 2009. Sömu mörk gilda í þjóðaratkvæðagreiðslunni 6. mars 2010.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica