Reykjavíkurkjördæmi norður
Til Reykjavíkurkjördæmis norður teljast:
Kjósendur sem búa við norðanverða Hringbraut, gömlu Hringbraut, Miklubraut eða Vesturlandsveg verða á kjörskrá í Reykjavíkurkjördæmi norður. Kjalarnes (póstnúmer 116) tilheyrir Reykjavíkurkjördæmi norður.
Grafarholtshverfi (póstnúmer 113), austan Vesturlandsvegar, var áður innan marka Reykjavíkurkjördæmis norður en skiptist nú milli suður- og norðurkjördæmis um Kristnibraut, Gvendargeisla og Biskupsgötu eins og nánar kemur fram í auglýsingu landskjörstjórnar. Kjósendur sem búa við þessar götur að norðanverðu verða á kjörskrá í Reykjavíkurkjördæmi norður.
