Landskjörstjórn
Yfirlit
Meðal verkefna landskjörstjórnar eru eftirfarandi:
Kjördæmi
Mörk kjördæma, kjörstaðir og kjördeildir skulu vera hin sömu og í síðastliðnum alþingiskosningum.
Umboðsmenn ólíkra sjónarmiða
Landskjörstjórn skal skipa umboðsmenn til að gæta tveggja ólíkra sjónarmiða við atkvæðagreiðsluna og úrlausn ágreiningsmála. Hugsunin er sú að þeir komi fram eins og umboðsmenn stjórnmálaflokka við alþingiskosningar og gæti hagsmuna þeirra, sérstaklega við talningu atkvæða. Tveir umboðsmenn verða í hverju kjördæmi.
Kjörskrár
Ákveður mörk fyrir íslenska ríkisborgara búsetta erlendis og þá sem eru óstaðsettir í hús.
Íslenskir ríkisborgarar búsettir erlendis sem eru á kjörskrá og voru við síðustu skráningu á Íslandi með lögheimili í Reykjavík, teljast til suðurkjördæmis ef þeir fæddust í fyrri hluta hvers mánaðar en til norðurkjördæmis ef þeir eru fæddust í síðari hluta hvers mánaðar. Landskjörstjórn ákveður hvar mörkin skulu vera í hverjum mánuði. Sama regla gildir um þá sem eru skráðir óstaðsettir í hús í Reykjavík.
Úrslit þjóðaratkvæðagreiðslu
Landskjörstjórn hefur úrskurðarvald í eftirtöldum málum:
Landskjörstjórn úrskurðar um gildi ágreiningsseðla og lýsir úrslitum þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Landskjörstjórn leysir einnig úr hugsanlegum kærum um ólögmæti atkvæðagreiðslunnar (sjá 12. gr. laga nr. 4/2010).
Kosningaúrslit í kjördæmum
Meiri hluti greiddra atkvæða á landinu öllu ræður niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Þegar landskjörstjórn hefur fengið í hendur eftirrit gerðarbóka allra yfirkjörstjórna og ágreiningsseðla, auglýsir hún með hæfilegum fyrirvara hvar og hvenær hún kemur saman til að úrskurða um gildi ágreiningsseðlanna og lýsa úrslitum þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Að því loknu tilkynnir landskjörstjórn dómsmálaráðuneytinu um niðurstöður sínar.
Hverjir eiga sæti í landskjörstjórn?
Aðalmenn:
Ástráður Haraldsson, formaður
Bryndís Hlöðversdóttir, varaformaður
Hervör Þorvaldsdóttir
Þuríður Jónsdóttir
Þórður BogasonVaramenn:
Sólveig Guðmundsdóttir
Anna Guðmundsdóttir
Sigurður Kári Árnason
Hrafnhildur Stefánsdóttir
Sigurjón Unnar Sveinsson
Aðsetur landskjörstjórnar er í Austurstræti 8-10, annarri hæð.
Ritari landskjörstjórnar er Ásmundur Helgason, netfang: asmundurh@althingi.is
Sími: 563 0917 og 696 1389.
Póstfang:
Landskjörstjórn,
Austurstræti 8-10, 2. hæð,
101 Reykjavík.
Veffang:
www.landskjor.is
