Þjóðskrá

Þjóðskrá sér um gerð kjörskrárstofna en samkvæmt lögum nr. 4/2010 eru á kjörskrárstofni allir íslenskir ríkisborgarar sem skráðir voru með lögheimili í ákveðnu sveitarfélagi samkvæmt íbúaskrá þjóðskrár 13. febrúar 2010 og fæddir eru 6. mars 1992 og fyrr. Ennfremur eru á kjörskrárstofni þeir íslenskir ríkisborgarar, sem lögheimili eiga erlendis en eiga kosningarrétt samkvæmt lögum um kosningar til Alþingis.
 

Kjörskrár miðast við skráð lögheimili í sveitarfélagi eins og það er samkvæmt íbúaskrá þjóðskrár þremur vikum fyrir kjördag. Óheimilt er því að breyta kjörskrá ef tilkynning um nýtt lögheimili hefur ekki borist þjóðskrá fyrir þennan tíma. Breytingar á lögheimili eftir viðmiðunardaginn leiða því ekki til breytinga á kjörskrá. Sveitarstjórn er við samningu kjörskrár þannig bundin við skráningu á íbúaskrá þjóðskrár 13. febrúar 2010 að því er varðar staðsetningu í sveitarfélag.

Kjörskrár skulu lagðar fram eigi síðar en laugardaginn 27. febrúar 2010. Kjörskrá skal liggja frammi á skrifstofu sveitarfélags eða öðrum hentugum stað á almennum skrifstofutíma til kjördags. Sveitarstjórnir taka þegar til meðferðar athugasemdir er þeim berast vegna kjörskrár og gera viðeigandi leiðréttingar, ef við á.

Erlendir ríkisborgarar
Erlendir ríkisborgarar eiga ekki kosningarrétt við þjóðaratkvæðagreiðsluna og eru því ekki á kjörskrárstofni. Eina undantekningin eru danskir ríkisborgarar, sem hafa kosningarrétt samkvæmt lögum nr. 85/1946, þ.e. þeir, sem voru búsettir á Íslandi 6. mars 1946 eða einhvern tíma á síðustu 10 árum fyrir þann tíma. 

Íslendingar búsettir erlendis

a. Skemur en 8 ár

 Íslenskir ríkisborgarar, sem flutt hafa lögheimili sitt til útlanda eftir 1. desember 2001 og náð hafa 18 ára aldri á kjördag, eiga kosningarrétt. Þessir einstaklingar eru teknir á kjörskrárstofn, án umsóknar, í því sveitarfélagi, þar sem þeir áttu síðast skráð lögheimili.

 b. Lengur en 8 ár

Íslenskir ríkisborgarar, sem flutt hafa lögheimili sitt til útlanda fyrir 1. desember 2001, verða teknir á kjörskrá við þessar kosningar hafi þeir sótt um það til Þjóðskrár fyrir 1. desember 2009. Þessir einstaklingar eru teknir á kjörskrárstofn í því sveitarfélagi, þar sem þeir áttu síðast skráð lögheimili, sbr. b-lið 1. mgr. 23. gr. kosningalaga.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica