Yfirkjörstjórnir
Í hverju kjördæmi er yfirkjörstjórn. Yfirkjörstjórnir er kosnar af Alþingi og er skipaðar fimm mönnum og fimm til vara. Það er borgaraleg skylda að taka sæti í kjörstjórn. Við ákveðnar aðstæður getur kjörstjórnarmaður þurft að víkja sæti, t.d. ef hann er í kjöri til Alþingis eða ef til úrskurðar er mál, sem varðar maka hans eða ættingja. Yfirkjörstjórnir skulu eins og aðrar kjörstjórnir halda gerðabækur og bóka gerðir sínar.
Formenn yfirkjörstjórna:
Norðvesturkjördæmi Suðvesturkjördæmi
Ríkharður Másson, sýslumaður, Jónas Þór Guðmundsson hrl.
Suðurgötu 1 Strandgötu 25
550 Sauðárkrókur 220 Hafnarfjörður
rikardurm@tmd.is jthg@simnet.is
Norðausturkjördæmi Reykjavíkurkjördæmi suður
Páll Hlöðvesson, skipatæknifr. Sveinn Sveinsson hrl.
Kringlumýri 11 Ármúla 21
600 Akureyri 108 Reykjavík
pallh@vma.is sveinn@logstofan.is
sími: 892-6350
Suðurkjördæmi Reykjavíkurkjördæmi norður
Grímur Hergeirsson hdl. Katrín Theodórsdóttir hdl.
Austurvegi 6 Ásvallagötu 2,
800 Selfoss 101 Reykjavík
gh@jp.is ktheodors@logron.is
Kjörgögn
Kjörgögnum útdeilt
Um leið og yfirkjörstjórn hefur fengið kjörgögn í hendur frá dómsmálaráðuneytinu útdeilir hún þeim til undirkjörstjórna. Hver undirkjörstjórn skal fá jafnmarga seðla og kjósendur eru á kjörskrá í hennar kjördeild og a.m.k. 10% umfram það. Þar sem kosnar eru sérstakar kjörstjórnir, þ.e. kjörstjórnir sem hafa umsjón með undirkjörstjórnum á stöðum þar sem kjördeildir eru fleiri en ein, er heimilt að afhenda þeim kjörseðla óflokkaða fyrir kjördeildir og annast þær þá afhendingu kjörseðlanna til undirkjörstjórna.
Hverri sendingu skal láta fylgja blindraspjöld, kosningaleiðbeiningar og sérprentun laga um kosningar til Alþingis. Þá skulu fylgja með sendingunni sex sterk umslög með áprentaðri utanáskrift til yfirkjörstjórnar, þar sem prentað hefur verið í neðra framhorn á tvö þeirra Ónýtir seðlar, á tvö Ágreiningsseðlar og á tvö Afgangsseðlar. Auk þess skal yfirkjörstjórn láta fylgja stórt umslag með áprentaðri utanáskrift sinni og á efra framhorni nafn kjördeildarinnar og skal í það umslag leggja hin umslögin.
Við talningu atkvæða gerir svo yfirkjörstjórn grein fyrir þeim seðlum sem ekki hafa verið afgreiddir til undirkjörstjórna.
Talning
Úrskurðir yfirkjörstjórnar í ágreiningsmálum um gildi utankjörfundarkjörseðils
Ef ágreiningur skapast innan kjörstjórnar eða milli kjörstjórnar og umboðsmanna ólíkra sjónarmiða um hvort utankjörfundaratkvæði sé gilt eða ógilt, er það bókað í kjörbók og síðan sent til úrskurðar hjá yfirkjörstjórn.
Móttaka atkvæðakassa og annarra kjörgagna
Yfirkjörstjórn tekur á móti atkvæðakössum, innsigluðum af kjörstjórnum og eftir atvikum einnig af umboðsmönnum, og öðrum kjörgögnum. Ef yfirkjörstjórn er stödd á kjörstað og talning atkvæða fer fram samstundis má kjörstjórn afhenda yfirkjörstjórn atkvæðakassann óinnsiglaðan að viðstöddum umboðsmönnum.
Talning fyrir opnum dyrum
Yfirkjörstjórn auglýsir með nægum fyrirvara stund og stað þar sem hún kemur saman til að opna atkvæðakassa og telja atkvæði. Talning skal fara fram fyrir opnum dyrum svo að kjósendum gefist kostur á að vera viðstaddir eftir því sem húsrúm leyfir.
Í viðurvist umboðsmanna ólíkra sjónarmiða opnar svo yfirkjörstjórn atkvæðasendingarnar úr hverri kjördeild eftir að hafa kannað hvort að innsigli þeirra séu í lagi. Yfirkjörstjórn skal þá kanna hvort tala kjósenda, sem greitt hafa atkvæði samkvæmt kjörbókum undirkjörstjórna, sé í samræmi við afhenta atkvæðaseðla og skráðar athugasemdir undirkjörstjórna. Síðan er tæmt úr atkvæðakössum í ílát og innihaldi þeirra blandað saman. Að viðstöddum umboðsmönnum eru kjörseðlar flokkaðir og taldir undir stjórn yfirkjörstjórnar.
Gildur eða ógildur seðill?
Við talningu skal úrskurða um ágreiningsseðla jafnóðum og þeir koma fyrir og bóka í gerðabók hve margir seðlar eru ógildir og ástæður þess. Ef ágreiningur verður innan kjörstjórnar um gildi kjörseðils ræður afl atkvæða úrslitum. Verði hins vegar ágreiningur milli kjörstjórnar og einhvers umboðsmanns um það hvort kjörseðill sé gildur eða ógildur skal leggja þá seðla í tvö sérstök umslög, í annað þá seðla sem kjörstjórn hefur úrskurðað gilda og í hitt þá seðla sem hún hefur úrskurðað ógilda.
Niðurstöður talningar kunngerðar
Þegar atkvæði hafa verið talin færir yfirkjörstjórn niðurstöðu kosninganna í gerðabók og kunngerir hana þeim sem viðstaddir eru. Þess skal gætt að samtala atkvæða beri saman við tölu þeirra sem atkvæði hafa greitt samtals í kjördæminu samkvæmt skýrslum undirkjörstjórna og að allt komi heim við samtölu afgangsseðla.
Landskjörstjórn úrskurðar um gildi kosninganna
Yfirkjörstjórn sendir landskjörstjórn afrit af gerðabók sinni varðandi kosninguna ásamt þeim kjörseðlum sem ágreiningur hefur verið um milli umboðsmanna og yfirkjörstjórnar. Þegar landskjörstjórn hefur fengið í hendur eftirrit gerðabóka allra yfirkjörstjórna og ágreiningsseðla auglýsir hún með hæfilegum fyrirvara hvar og hvernær hún kemur saman til að úrskurða um gildi ágreiningsseðlanna og lýsa úrslitum þjóðaratkvæðagreiðslunnar til að umboðsmönnum gefist færi á að vera viðstaddir. Að því loknu tilkynnir landskjörstjórn dómsmálaráðuneytinu um niðurstöður sínar.
Ráðuneytið auglýsir úrslit atkvæðagreiðslunnar í Lögbirtingablaði og ríkisútvarpi.
Verði lögin felld úr gildi í þjóðaratkvæðagreiðslunni skal ráðuneytið auk þess birta sérstaka auglýsingu þess efnis í A-deild Stjórnartíðinda um leið og úrslit atkvæðagreiðslunnar liggja fyrir.
Yfirkjörstjórn skal síðan innsigla allar kjörskrár og senda dómsmálaráðuneytinu, sem geymir þær í eitt ár.
Kosningum frestað og uppkosningar
Kjörseðlar komast ekki til skila
Ef kosning fer ekki fram vegna þess að kjörseðlasending kemst ekki til skila, skal yfirkjörstjórn endurnýja sendinguna svo fljótt sem verða má og kveður þá undirkjörstjórn til kjörfundar að nýju.
Kosningu frestað vegna veðurs
Undirkjörstjórn getur að fengnu samþykki yfirkjörstjórnar, frestað kosningu í kjördeild eftir að hún er hafin ef hún telur óviðráðanlegar ástæður eins og óveður hindra að kosning geti fram haldið. Skal þá kosning fara fram að nýju innan viku.
Atkvæðasending frá kjördeild kemst ekki til skila
Ef kosning hefur farið fram en atkvæðasending frá kjördeild kemst ekki til skila til yfirkjörstjórnar, lætur yfirkjörstjórn nýja kosningu fara fram í kjördeildinni innan viku.
