Fréttir

Auglýsing um niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslu um gildi laga nr. 1/2010 - 16.3.2010

Dómsmála- og mannréttindaráðuneytið hefur birt neðangreinda auglýsingu um niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar um gildi laga nr. 1/2010 í Lögbirtingablaði og Ríkisútvarpi.

Lesa meira
 

Frétt frá landskjörstjórn um niðurstöðu talningar - 7.3.2010

Landskjörstjórn hefur sent frá sér neðangreinda frétt um niðurstöðu talningar yfirkjörstjórna og umdæmiskjörstjórna á landinu öllu.

Lesa meira
 

Spurningar vegna kjörskrár - 5.3.2010

Kjósendur geta kannað hvar þeir eru á kjörskrá í þjóðaratkvæðagreiðslunni með því að smella hér.

Ef spurningar vakna vegna kjörskrár á kjördag er hægt að hringja í Þjóðskrá í síma 569-2904, 569-2905, 569-2906 og 569-2930 fram til klukkan 22.

Lesa meira
 

Upplýsingar um kjörstaði - 5.3.2010

Sveitarfélög auglýsa kjörstaði í þjóðaratkvæðagreiðslunni 6. mars nk. og mörg þeirra birta einnig kjörfundarupplýsingar á vefjum sínum. Hér er að finna tengla á vefsíður nokkurra sveitarfélaga.

Lesa meira
 

Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar í Laugardalshöll - 4.3.2010

Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar á vegum sýslumannsins í Reykjavík fer fram í Laugardalshöll. Þar er opið frá kl. 10-22 í dag og á morgun. Á kjördag er opið frá kl. 10-18 fyrir þá sem ekki komast á kjörstað í sinni heimabyggð.
Lesa meira
 

Umboðsmenn ólíkra sjónarmiða í einstökum kjördæmum - 2.3.2010

Landskjörstjórn hefur skipað tólf einstaklinga sem umboðsmenn ólíkra sjónarmiða við þjóðaratkvæðagreiðsluna í einstökum kjördæmum, sbr. 9. gr. laga nr. 4/2010 um framkvæmd atkvæðagreiðslunnar.

Lesa meira
 

Auglýsing vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar 6. mars 2010 - 26.2.2010

Samkvæmt lögum nr. 4/2010 skal dómsmála- og mannréttindaráðuneytið viku fyrir kjördag birta spurninguna sem lögð verður fyrir kjósendur í þjóðaratkvæðagreiðslunni 6. mars 2010.

Lesa meira
 

Kjósendur á kjörskrárstofni eru 230.014 talsins - 24.2.2010

Á kjörskrárstofnum vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar 6. mars 2010 eru 230.014 kjósendur, konur eru 115.400 en karlar 114.614. Lesa meira
 

Þjóðskrá hefur opnað upplýsingaveitu fyrir kjósendur um skráningu á kjörskrá - 22.2.2010

Kjósendur geta nú kannað hvar þeir eru á kjörskrá í fyrirhugaðri þjóðaratkvæðagreiðslu 6. mars næstkomandi, á kosningavef dómsmála- og mannréttindaráðuneytisins, www.kosning.is og á vef Þjóðskrár, www.thjodskra.is. Lesa meira
 

Vefsíðan thjodaratkvaedi.is hefur verið opnuð - 18.2.2010

Vefsíðan thjodaratkvaedi.is hefur verið opnuð í tilefni af þjóðaratkvæðagreiðslunni 6. mars um lög nr. 1/2010. Þar eru útskýrð á hlutlausan hátt meginatriði máls sem varða atkvæðagreiðsluna, ástæður hennar og mögulegar afleiðingar. Lesa meira
 

Lagastofnun HÍ falið að semja kynningarefni vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar 6. mars - 16.2.2010

Dómsmála- og mannréttindaráðuneytið hefur falið Lagastofnun Háskóla Íslands að semja hlutlaust kynningarefni fyrir almenning vegna fyrirhugaðrar þjóðaratkvæðagreiðslu. Lesa meira
 

Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar hefst í Laugardalshöll 10. febrúar - 9.2.2010

Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar á vegum sýslumannsins í Reykjavík færist yfir í Laugardalshöll frá og með morgundeginum, 10. febrúar 2010.

Lesa meira
 

Mörk kjördæmanna í Reykjavík við þjóðaratkvæðagreiðsluna 6. mars 2010 - 9.2.2010

Landskjörstjórn hefur ákveðið að við fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu 6. mars, um skilmála ríkisábyrgðar á láni út af ICESAVE-samningunum, verði mörk kjördæmanna tveggja í Reykjavík þau sömu og við síðustu alþingiskosningar 25. apríl 2009.

Lesa meira
 

Efni um Icesave á vef Alþingis - 4.2.2010

Á vef Alþingis hefur verið safnað saman efni sem tengist setningu laga um ríkisábyrgð vegna Icesave-reikninga Landsbankans í Bretlandi og Hollandi. Lesa meira
 

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla í útlöndum - 28.1.2010

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla erlendis vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar 6. mars 2010, hefst í dag, 28. janúar, eins og hér innanlands. Búist er við því að kosið verði á u.þ.b. 235 stöðum í 84 löndum.

Lesa meira
 

Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar hefst fimmtudaginn 28. janúar - 27.1.2010

Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar 6. mars 2010 hefst fimmtudaginn 28. janúar.

Lesa meira
 

Þjóðaratkvæðagreiðsla fer fram 6. mars 2010 - 19.1.2010

Með vísun til 1. gr. laga nr. 4/2010, sbr. 26. gr.stjórnarskrárinnar nr. 33/1944 hefur Ragna Árnadóttir dómsmála- og mannréttindaráðherra í samráði við landskjörstjórn ákveðið að þjóðaratkvæðagreiðsla skuli fara fram hinn 6. mars 2010 um framtíðargildi laga nr. 1/2010.

Lesa meira
 

Framkvæmd þjóðaratkvæðagreiðslu er samvinnuverkefni - 14.1.2010

Framkvæmd þjóðaratkvæðagreiðslu er samvinnuverkefni nokkurra opinberra aðila.

Lesa meira
 

Tilhögun þjóðaratkvæðagreiðslunnar - 14.1.2010

Samkvæmt lögum nr. 4/2010 um framkvæmd þjóðaratkvæðagreiðslu skal svo fljótt sem kostur er og eigi síðar en fyrsta laugardag í mars 2010 fara fram, í samræmi við 26. gr. stjórnarskrárinnar, almenn og leynileg þjóðaratkvæðagreiðsla um framtíðargildi laga nr. 1/2010.

Lesa meira
 

Upplýsingar um kjörstaði -

Sveitarfélög auglýsa kjörstaði í þjóðaratkvæðagreiðslunni 6. mars nk. og mörg þeirra birta einnig kjörfundarupplýsingar á vefjum sínum. Hér er að finna tengla í kosningaupplýsingar á vefjum nokkurra sveitarfélaga.

Lesa meira
 

Upplýsingar um kjörstaði -

Sveitarfélög auglýsa kjörstaði í þjóðaratkvæðagreiðslunni 6. mars nk. og mörg þeirra birta einnig kjörfundarupplýsingar á vefjum sínum. Sjá tengla á kosningaupplýsingar hjá nokkrum sveitarfélögum hér.

Lesa meira
 

Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar í Laugardalshöll -

Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar á vegum sýslumannsins í Reykjavík er í Laugardalshöll. Þar er opið frá kl. 10-22 í dag og á morgun. Á kjördag frá kl. 10-18 fyrir þá sem ekki komast á kjörstað í sinni heimabyggð.

Lesa meira
 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica