Kjörseðill

Kjörseðill

Samkvæmt lögum nr. 4/2010 segir að á kjörseðli við þjóðaratkvæðagreiðsluna 6. mars 2010 skuli koma fram eftirfarandi:

„Lög nr. 1/2010 kveða á um breytingu á lögum nr. 96/2009, um heimild til handa fjármálaráðherra, fyrir hönd ríkissjóðs, til að ábyrgjast lán Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta frá breska og hollenska ríkinu til að standa straum af greiðslum til innstæðueigenda hjá Landsbanka Íslands hf. Alþingi samþykkti lög nr. 1/2010 en forseti synjaði þeim staðfestingar. Eiga lög nr. 1/2010 að halda gildi?“

Á kjörseðli skulu gefnir tveir möguleikar á svari, þ.e. „Já, þau eiga að halda gildi“ og „Nei, þau eiga að falla úr gildi“.

Smellið hér til að skoða sýnishorn af kjörseðli vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar hinn 6. mars næstkomandi.





Þetta vefsvæði byggir á Eplica