Framboð
Framboðum skal skilað á sérstökum eyðublöðum, sem landskjörstjórn útbýr í samráði við dómsmálaráðuneytið fyrir klukkan 12 á hádegi 18. október 2010, sjá upplýsingar og eyðblöð hér og á vef landskjörstjórnar.
Landskjörstjórn auglýsir ennfremur á vefsíðu sinni, landskjor.is, og hér á vefnum hinn 3. nóvember þá sem eru í framboði. Í auglýsingunni skal greina nöfn frambjóðenda, starfsheiti þeirra og sveitarfélög þar sem þeir eru búsettir. Landskjörstjórn raðar frambjóðendum í starfsrófsröð, þar sem fyrsta nafn er valið af handahófi og úthlutar þeim um leið auðkennistölu, sem einnig er valin af handahófi. Auðkennistalan gerir kjósandanum kleift við sjálfa kosninguna, að forgangsraða frambjóðendum á kjörseðilnum samkvæmt sínu eigin vali.
