Gerð og prentun kjörseðla
- Dómsmálaráðuneytið sér um gerð og prentun kjörseðla og sendir þá ásamt öðrum kjörgögnum til þeirra sem annast framkvæmd atkvæðagreiðslunnar á kjörfundi og utan kjörfundar. Haga skal sendingunum í samræmi við lög um kosningar til Alþingis.
-
Efst á kjörseðli skulu prentaðar leiðbeiningar um hvernig atkvæðagreiðsla fer fram, sbr. reglur 11. gr. Á kjörseðli skulu vera tuttugu og fimm vallínur. Í fyrstu vallínu standi auðkennistala þess frambjóðanda sem er 1. val kjósanda, í annarri vallínu standi auðkennistala þess frambjóðanda sem er 2. val kjósanda, í þriðju vallínu standi auðkennistala frambjóðanda sem er 3. val kjósanda o.s.frv. Fremst í hverri vallínu skulu vera ferningar fyrir stafi í auðkennistölu frambjóðanda, jafnmargir og nauðsynlegt er, sbr. 6. mgr. 8. gr. Á bakhlið kjörseðils komi auðkennistákn seðilsins.
-
Dreifa skal til allra kjósenda í landinu afriti af kjörseðli, auðkenndum sem kynningarseðill, ásamt skýringum á því hvernig atkvæðagreiðslan fer fram. Kynningarseðillinn skal jafnframt birtur á vefsíðu á vegum ráðuneytisins ásamt skýringum. Kynningarseðilinn má kjósandi hafa með sér í kjörklefa.
