Táknmál
Kosið til stjórnlagaþings 27. nóvember 2010
- upplýsingavefir um framkvæmd kosninganna: kosning.is og landskjor.is
Íslendingar ganga að kjörborði laugardaginn 27. nóvember 2010 og velja fulltrúa til setu á stjórnlagaþingi sem kemur saman eigi síðar en 15. febrúar 2011 til að endurskoða stjórnarskrá Íslands.
- Stjórnlagaþing skal skipað minnst 25 og mest 31 þjóðkjörnum og persónukjörnum fulltrúa.
- Landið verður eitt kjördæmi og vægi atkvæða verður því jafnt.
- Atkvæði af landinu öllu verða talin í Reykjavík á vegum landskjörstjórnar og úrslit birt fyrir landið í heild, ekki eftir kjördæmum.
- 18. október rennur út framboðsfrestur.
- Fyrir 3. nóvember upplýsir landskjörstjórn hverjir bjóða sig fram til stjórnlagaþings.
- 10. nóvember hefst atkvæðagreiðsla utan kjörfundar.
- 27. nóvember er kosið til stjórnlagaþings.
Framkvæmd kosninga til stjórnlagaþings er samvinnuverkefni dómsmála- og mannréttindaráðuneytis, landskjörstjórnar, Þjóðskrár Íslands, utanríkisráðuneytis, sveitarstjórna, sýslumanna og fleiri opinberra aðila.
