Kjörskrá verður unnin með sama hætti og við alþingiskosningar. Þjóðskrá Íslands sér um gerð kjörskrárstofna en samkvæmt lögumnr. 90/2010eru á kjörskrárstofni allir íslenskir ríkisborgarar sem skráðir verða með lögheimili í tilteknu sveitarfélagi samkvæmt íbúaskrá Þjóðskrár Íslands 6. nóvember 2010 og fæddir eru 27. nóvember 1992 og fyrr. Ennfremur eru á kjörskrárstofni þeir íslenskir ríkisborgarar sem flutt hafa lögheimili sitt til útlanda og uppfylla kosningarréttarskilyrði laga um kosningar til Alþingis.