
Beint í leiðarkerfi vefsins.
Upplýsingar um úrslit sveitarstjórnarkosninganna í hverju sveitarfélagi eru nú komnar inn á vefinn. Sjá upplýsingasíður hvers sveitarfélags.
Á vefnum má finna leiðbeiningar til kjósenda, til dæmis um kosningarrétt, kjörgengi og utankjörfundaratkvæðagreiðslu. Einnig eru leiðbeiningar til frambjóðenda,til dæmis um frágang framboðslista og til kjörstjórna og sveitarstjórna, meðal annars um túlkun laga.
Kjósendur geta nú kannað hvar þeir eru á kjörskrá í sveitarstjórnarkosningunum 29. maí næstkomandi hér á vefnum. Með því að slá inn kennitölu kjósanda kemur upp nafn hans, lögheimili og sveitarfélag. Reykvíkingar og íbúar nokkurra stærstu sveitarfélaganna fá einnig upplýsingar um kjörstaði og kjördeildir.
Hreppsnefnd og kjörstjórn Reykhólahrepps hafa ákveðið að kosið skuli á ný í sveitarfélaginu, svokölluð uppkosning skuli fara fram laugardaginn 24. júlí 2010.
Nánar...Upplýsingar um úrslit sveitarstjórnarkosninganna í hverju sveitarfélagi verða settar inn á vefinn jafnóðum og þær berast, sjá upplýsingasíður hvers sveitarfélags.
Nánar...Kjósendur geta kannað hvar þeir eru á kjörskrá í sveitarstjórnarkosningunum hinn 29. þessa mánaðar með því að smella hér. Þegar slegin er inn kennitala kemur upp nafn, lögheimili og sveitarfélag. Reykvíkingar og íbúar í nokkrum stærstu sveitarfélögunum fá einnig upplýsingar um kjörstað og kjördeild.
Nánar...Sveitarfélög auglýsa kjörstaði í sveitarstjórnarkosningunum 29. maí nk. og mörg þeirra birta einnig kjörfundarupplýsingar á vefjum sínum. Hér er að finna tengla á vefsíður nokkurra sveitarfélaga.
Nánar...Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar á vegum sýslumannsins í Reykjavík er í Laugardalshöll.
Dómsmála- og mannréttindaráðuneytið hefur nú sent öllum kjörstjórnum á landinu veggspjöld með kosningaleiðbeiningum fyrir sveitarstjórnarkosningarnar laugardaginn 29. maí næstkomandi.
Meðalaldur fulltrúa á framboðslistum við sveitarstjórnarkosningarnar 29. maí nk. er 44,8 ár samanborið við 43 ár í kosningunum 2006 og 2002.
Nánar...
Alls eiga 4.575 erlendir ríkisborgarar kosningarrétt við sveitarstjórnarkosningarnar 29. maí næstkomandi og hefur dómsmála- og mannréttindaráðuneytið nú sent þeim öllum kynningarbækling um kosningarnar.
Nánar...Á kjörskrárstofnum, sem hafa verið unnir vegna kosninganna í vor eru 225.930 kjósendur, 113.663 konur og 112.267 karlar.
Nánar...Alls eru 185 listar í framboði til 76 sveitarstjórna í kosningunum 29. maí næstkomandi. Á listunum eiga sæti 2846 einstaklingar, eða ríflega 1,2% kjörgengra einstaklinga í landinu.
Nánar...Kjósanda, sem er til meðferðar á sjúkrahúsi eða vistmaður þar, á dvalarheimili aldraðra og stofnun fyrir fatlaða, er heimilt að greiða atkvæði á stofnuninni. Meðfylgjandi eru upplýsingar um tímasetningar vegna utankjörfundaratkvæðagreiðslu á sjúkrahúsum, dvalarheimilum aldraðra o.fl. á vegum sýslumannsembættisins í Reykjavík.
Nánar...Framboðsfrestur rennur út kl. 12 á hádegi í dag, 8. maí 2010, og er ráðuneytið með símavakt frá kl. 10.00.
Hér að neðan er skjal með upplýsingum um formenn kjörstjórna í sveitarstjórnarkosningunum 29. maí.
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna sveitarstjórnarkosninganna fer fram hjá embætti sýslumannsins í Reykjavík út vikuna en verður færð í Laugardalshöll 10. maí nk.
Nánar...Frestur til að skila framboðslistum til yfirkjörstjórnar í viðkomandi sveitarfélagi er til kl. 12 á hádegi laugardaginn 8. maí 2010.
Nánar...Á vef Jafnréttisstofu, www.jafnretti.is, má finna upplýsingar um hlutfall kynjanna í sveitarstjórnum. Þar kemur fram að hlutfall kvenna í sveitarstjórnum á Íslandi hefur aukist hægt og bítandi síðastliðna hálfa öld og eftir síðustu sveitarstjórnarkosningar voru konur rúmur þriðjungur sveitarstjórnarmanna.
Nánar...Sveitarstjórnarkosningar verða haldnar í 77 sveitarfélögum 29. maí næstkomandi. Frá því kosið var til sveitarstjórna síðast árið 2006 hefur sveitarfélögum fækkað um tvö, úr 79 í 77. Að loknum kosningunum í vor tekur gildi sameining Arnarneshrepps og Hörgárbyggðar og verða þá sveitarfélög í landinu 76 talsins.
Nánar...Utankjörfundaratkvæðagreiðslan fer fram í öllum sendiráðum Íslands erlendis og aðalræðisskrifstofum Íslands í New York, Winnipeg, Shanghai og Þórshöfn í Færeyjum.
Nánar...Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar hefst þriðjudaginn 6. apríl 2010. Kjósanda sem ekki getur kosið á kjördag er heimilt að greiða atkvæði utan kjörfundar frá og með þeim degi til kjördags.
Nánar...Almennar sveitarstjórnarkosningar verða haldnar laugardaginn 29. maí 2010. Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar hefst þriðjudaginn 6. apríl en frestur til að skila framboðslistum til yfirkjörstjórnar í viðkomandi sveitarfélagi er til kl. 12 á hádegi laugardaginn 8. maí.
Nánar...Helstu dagsetningar vegna sveitarstjórnarkosninganna sem fram fara 29. maí 2010.
Frá og með deginum í dag, mánudeginum 10. maí, fer atkvæðagreiðsla utan kjörfundar á vegum sýslumannsins í Reykjavík fram í Laugardalshöll.