Kosningavefur dómsmála- og mannréttindaráðuneytisins
Alþingiskosningar
Almennar reglulegar alþingiskosningar skulu fara fram eigi síðar en við lok kjörtímabils. Upphaf og lok kjörtímabils miðast við sama vikudag í mánuði, talið frá mánaðamótum. Kjörtímabilið er fjögur ár. Ef Alþingi er rofið ákveður forseti Íslands þá kjördag.
Forsetakosningar
Forsetakosningar á Íslandi eru haldnar á fjögurra ára fresti. Kosningarétt hafa allir íslenskir ríkisborgarar yfir 18 ára aldri sem hafa átt lögheimili á Íslandi.
Sveitarstjórnarkosningar
Almennar sveitarstjórnarkosningar verða haldnar laugardaginn 29. maí 2010. Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar hefst þriðjudaginn 6. apríl en frestur til að skila framboðslistum til yfirkjörstjórnar í viðkomandi sveitarfélagi er til kl. 12 á hádegi laugardaginn 8. maí.
Þjóðaratkvæðagreiðslur
Þjóðaratkvæðagreiðslan 6. mars var sú fyrsta sem haldin er á Íslandi frá stofnun lýðveldis. Ekki eru til almenn lög um þjóðaratkvæðagreiðslur hér á landi en á þessari síðu er að finna fróðleik er tengist umræðum um þjóðaratkvæðagreiðslur.
