Algengar spurningar

Fyrirsagnalisti

Eiga umboðsmenn framboðslista rétt á að fá ljósrit af meðmælendalistum annarra framboðslista?

Svar:

Ekki verður talið að meðmælendur eigi rétt á nafnleynd. Kjörstjórn er því skylt samkvæmt upplýsingalögum að afhenda listana, verði farið fram á það.

Geta listar myndað kosningabandalag fyrir kosningar og þannig nýtt betur atkvæði sín og fengið fleiri kjörna fulltrúa?

Svar:

Í því fyrirkomulagi sem lýst er í fyrirspurn þinni felst að viðkomandi stjórnmálaöfl bjóða fram hvert sinn lista en bindast þá samtökum um að nýta atkvæðaleifar á sem hagkvæmastan hátt. Það felur í sér að atkvæðaleif lista sem ekki á möguleika á fleiri fulltrúum nýtist þeim lista kosningabandalagsins sem er næstur því að fá kjörinn fulltrúa.

Hvað gerist ef aðeins einn framboðslisti berst fyrir lok framboðsfrests?

Svar:

Þá skal yfirkjörstjórn framlengja framboðsfrest um tvo sólarhringa. Komi ekki fram nýr framboðslisti áður en þeim fresti lýkur verður framkominn framboðslisti sjálfkjörinn.

Hvað gerist ef það berst enginn framboðslisti?

Svar:

Ef enginn framboðslisti berst áður en framboðsfrestur rennur út, þann 8. maí 2010, verður kosningin óbundin.

Hvað þarf að koma fram í meðmælabrefi með framboðslista?

Svar:

Samkvæmt 22. gr. laga um kosningar til sveitarstjórna skal framboðslista fylgja skrifleg yfirlýsing allra þeirra sem á listanum eru að þeir hafi leyft að setja nöfn sín á listann. Framboðslista skal og fylgja skrifleg yfirlýsing um stuðning við listann frá kjósendum í hlutaðeigandi sveitarfélagi.

Hvað þarf maður að gera til að geta boðið fram lista?

Svar:

Til að geta boðið fram lista þarf að uppfylla skilyrði laga um kosningar til sveitarstjórna um lágmarksfjölda frambjóðenda og meðmælenda. Þessi fjöldi er mismunandi eftir stærð sveitarfélaga og fjölda aðalmanna í sveitarstjórn í hverju sveitarfélagi.

Hvar fæ ég upplýsingar um hverjir eiga sæti í kjörstjórn?

Svar:

Upplýsingar um hverjir skipa kjörstjórn er hægt að fá á skrifstofu viðkomandi sveitarfélags.

Hver á fjöldi meðmælenda að vera í nýsameinuðum sveitarfélögum?

Svar:

Fjöldi meðmælenda ætti að miðast við nýja sveitarfélagið þar sem verið er að kjósa í sveitarstjórn þess. Nánari upplýsingar um fjölda meðmælenda má finna í lögum um kosningar til sveitarstjórna á vef Alþingis.

Þurfa frambjóðendur ekki að vera með hreint sakavottorð?

Svar:

Nei, það er engin krafa gerð um það í lögum að frambjóðendur til sveitarstjórnar þurfi að hafa hreint sakavottorð.

Þetta vefsvæði byggir á Eplica