Hlutverk kjörstjórna

Hlutverk kjörstjórna

Framboðslisti skal tilgreina skýrlega fullt nafn frambjóðenda, kennitölu þeirra, stöðu og heimili.

Skilyrði til að vera frambjóðandi

Kjörgengi: Kjörgengur í sveitarstjórn er hver sá sem á kosningarrétt í sveitarfélaginu og hefur ekki verið sviptur lögræði.

Samþykki frambjóðanda: Nafn manns má ekki setja á framboðslista án skriflegs samþykkis hans. Framboðslista skal fylgja til yfirkjörstjórnar skrifleg yfirlýsing allra þeirra sem á listanum eru um að þeir hafi leyft að nöfn þeirra verði sett á listann.

Einungis á einum lista: Enginn má bjóða sig fram á fleiri framboðslistum en einum við hinar sömu sveitarstjórnarkosningar.

Gæta skal að reglum um hámarks- og lágmarksfjölda frambjóðenda á lista.

Á framboðslista skulu vera að minnsta kosti jafnmörg nöfn frambjóðenda og kjósa á sem aðalmenn í viðkomandi sveitarstjórn og aldrei fleiri en tvöföld sú tala.

Ef yfirkjörstjórn berst listi með fleiri nöfnum en tilskilið er nemur hún burt af listanum öftustu nöfnin sem eru fram yfir hámarkstöluna.

Meðmælendur

Skilyrði til að vera meðmælandi:

  • Hver meðmælandi skal vera með kosningarrétt í hlutaðeigandi sveitarfélagi.
  • Hver kjósandi má einvörðungu mæla með einum lista við hverjar kosningar.
  • Fjöldi meðmælenda:

Lágmarksfjöldi meðmælenda er sem hér segir:

  • 10 meðmælendur í sveitarfélagi með 101–500 íbúa
  • 20 meðmælendur í sveitarfélagi með 501–2.000 íbúa
  • 40 meðmælendur í sveitarfélagi með 2.001–10.000 íbúa
  • 80 meðmælendur í sveitarfélagi með 10.001–50.000 íbúa
  • 160 meðmælendur í sveitarfélagi með 50.001 og fleiri íbúa.

Hámarkstala meðmælenda er tvöföld tilskilin lágmarkstala. Ekki er gerð krafa um meðmælendur í sveitarfélagi með 100 íbúa eða færri.

Umboðsmenn

Hverjum framboðslista skal fylgja til yfirkjörstjórnar skrifleg tilkynning um hverjir tveir menn séu umboðsmenn listans.

Ef umboðsmenn listans eru ekki tilgreindir eða umboðsmaður er af einhverjum ástæðum forfallaður eru frambjóðendur í aðalsætum hver um sig réttir umboðsmenn hans.

Þessir umboðsmenn gæta réttar lista þeirra sem þeir eru fyrir við skoðun og úrskurðun listanna. Þeir gefa þær upplýsingar um listana er yfirkjörstjórn óskar.

Umboðsmönnum er skylt að hlíta þeim fundarreglum sem kjörstjórnir setja.

Umboðsmenn lista eiga rétt á að gæta þess að kjörstjórn og kjósendur hegði sér lögum samkvæmt við kosningarathöfnina og má hver þeirra gera athugasemdir við kjörstjórnina um það er honum þykir áfátt. Þeim er enn fremur heimilt að gefa öðrum umboð til að vera viðstaddir kosningar á hinum einstöku kjörstöðum og við talningu atkvæða.

Ef umboðsmaður telur eitthvað ólöglegt vera við kosningarathöfnina og fær það ekki leiðrétt á hann rétt á að fá ágreiningsefnið bókað þegar í stað í gerðabók viðkomandi kjörstjórnar.

Ef kjörstjórn neitar að bóka eitthvað fyrir umboðsmann varðandi kosningarathöfnina á hann rétt á að bóka það sjálfur og skal hann jafnframt rita nafn sitt undir.

Ef umboðsmenn lista eru ekki viðstaddir talningu skal yfirkjörstjórn kveðja valinkunna menn úr sömu stjórnmálasamtökum eða tengda listunum, ef unnt er, til að gæta réttar af hendi listans.

Nafn framboðs

Nafn viðkomandi framboðs þarf að koma skýrt fram þegar listanum er skilað. Er þar ýmist um að ræða nafn viðkomandi stjórnmálaflokks eða annað nafn sem aðstandendur viðkomandi framboðslista hafa valið.

Hæfi kjörstjórnar

Sá sem sæti á í kjörstjórn skal víkja sæti ef hann er í kjöri til sveitarstjórnar í bundnum hlutfallskosningum. Einnig skal kjörstjórnarmaður víkja sæti ef til úrskurðar er mál er varðar maka hans eða þann sem er skyldur honum eða mægður í beinan legg eða að öðrum lið til hliðar eða tengdur honum með sama hætti vegna ættleiðingar.

Kjörbréf

Yfirkjörstjórn skal gefa út kjörbréf til aðalfulltrúa í sveitarstjórn og jafnmargra varamanna. Yfirkjörstjórn skal ef þörf krefur gefa út kjörbréf til annarra varamanna sem sæti taka í sveitarstjórn og kjörnir hafa verið í bundnum hlutfallskosningum. Jafnframt skal yfirkjörstjórn senda nýkjörinni sveitarstjórn greinargerð um úrslit kosninganna.

Sýnishorn kjörbréfa

Hlutfallskosning

Óbundin kosning


Þetta vefsvæði byggir á Eplica