Svar:
Opnunartími kjörstaða er misjafn og fer eftir stærð sveitarfélaga, samkvæmt ákvörðun yfirkjörstjórnar á hverjum stað. Í stærstu sveitarfélögunum opna kjörstaðir yfirleitt kl. 9 en sums staðar opna þeir ekki fyrr en kl. 12. Lokunartími er líka misjafn en víðast hvar er opið til kl. 22.
Svar:
Nei, ekki er unnt að fá sendan fulltrúa frá kjörstjórn heim á kjördag.
Svar:
Já, unnt er samkvæmt lögum um kosningar til Alþingis að kjósa í heimahúsi. Sækja þarf um það í síðasta lagi kl. 16 fjórum dögum fyrir kjördag á sérstöku eyðublaði. Sjá nánar
hér.
Svar:
Lögin er að finna á vef á Alþingis. Sjá lög um kosningar til sveitarstjórna
hér og sveitarstjórnarlög
hér.
Svar:
Með orðalaginu að marka kross á kjörseðilinn er átt við bókstafinn x, en táknið + væri jafngilt. Ef merking er með öðrum hætti metur kjörstjórn hvort áletrunin er slík að meta skuli hann ógildan samkvæmt ákvæðum 78. og 79. gr. sömu laga.