Atkvæðagreiðsla á kjördag

Atkvæðagreiðsla á kjördag

Kjörstaðir

Kjörstaðir eru auglýstir af sveitarstjórn eða yfirkjörstjórn á þann hátt sem venja er að birta opinberar auglýsingar á hverjum stað.

Upphaf kjörfundar

Kjörfund skal setja á tímabilinu klukkan 9–12 árdegis. Skal upphaf kjörfundar auglýst fyrirfram af sveitarstjórn eða yfirkjörstjórn.

Lok kjörfundar

Kjörfundur skal almennt standa í a.m.k. átta klukkustundir og ekki má slíta kjörfundi fyrr en hálf klukkustund er liðin frá því að kjósandi gaf sig síðast fram. Heimilt er að ljúka kjörfundi ef allir sem eru á kjörskrá hafa greitt atkvæði. Einnig er heimilt að ljúka kjörfundi eftir fimm klukkustundir ef öll kjörstjórnin og umboðsmenn eru sammála um það, enda sé liðin hálf klukkustund frá því að kjósandi gaf sig síðast fram. Kjörfundi skal vera lokið eigi síðar en klukkan 22.

Kosningaleiðbeiningar

Dómsmála- og mannréttindaráðuneytið gefur út kosningaleiðbeiningar og skulu þær hanga uppi í kjörfundarstofu og annars staðar á kjörstað á áberandi stað.

Dyravarsla

Dyravörður skipaður af kjörstjórn sér um að hleypa kjósendum inn í kjörfundarstofu. Ef ágreiningur er um í hvaða röð kjósendur komast að ræður röðin á kjörskrá, þannig að dyravörður hleypir þeim fyrr inn sem framar stendur á kjörskrá af þeim sem gefa sig fram.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica