Refsiákvæði

Refsiákvæði

Refsiákvæði laga um kosningar til sveitarstjórna

Sektum varðar, ef ekki liggur þyngri refsing við eftir öðrum ákvæðum þessara laga eða eftir öðrum lögum, ef sveitarstjórn, kjörstjórn, utankjörfundarkjörstjóri eða embættismaður haga fyrirskipaðri framkvæmd laga þessara vísvitandi á ólöglegan hátt eða vanrækja hana.

Eftirtalið varðar sektum:

  • Ef maður býður sig fram til setu í sveitarstjórn vitandi að hann er ekki kjörgengur.
  • Ef maður býður sig fram á fleiri listum en einum.
  • Ef kjósandi ónýtir af ásettu ráði atkvæðaseðil sinn við kosningu á kjörfundi eða við kosningu hjá utankjörfundarkjörstjóra.
  • Ef kjósandi sýnir af ásettu ráði hvernig hann kýs eða hefur kosið.
  • Ef maður njósnar um hvernig kjósandi kýs eða hefur kosið.
  • Ef kjósandi gerir sér upp sjónleysi eða önnur forföll til að fá aðstoð við kosningu.
  • Ef maður vanrækir af ásettu ráði að koma til skila atkvæðabréfi sem honum hefur verið trúað fyrir eða tefur vísvitandi fyrir sendingu atkvæða og kjörgagna.
  • Ef maður gefur ónákvæmar eða villandi upplýsingar um sig eða aðra á þann hátt sem greint er í d-lið 92. gr., ef ekki liggur þyngri refsing við eftir öðrum ákvæðum þessara laga eða eftir öðrum lögum.
  • Ef maður gefur út villandi kosningaleiðbeiningar.

Eftirtalið varðar sekt nema þyngri refsing liggi við eftir öðrum lögum

  • Ef kjörstjórnarmaður eða utankjörfundarkjörstjóri njósnar um hvernig kjósandi kýs eða hefur kosið eða gefur vísvitandi villandi kosningaleiðbeiningar.
  • Ef kjörstjórnarmaður eða utankjörfundarkjörstjóri, sem veitir aðstoð, segir frá því hvernig kjósandi, sem hann hefur aðstoðað, hefur greitt atkvæði.
  • Ef kjörstjórnarmaður, utankjörfundarkjörstjóri, póstur eða sá sem tekið hefur að sér flutning kjörgagna eða atkvæðakassa tefur fyrir að það komist til skila.
  • Ef maður torveldar öðrum sókn á kjörfund eða atkvæðagreiðslu utan kjörfundar.
  • Ef maður greiðir atkvæði á tveimur stöðum við sömu sveitarstjórnarkosningar.
  • Ef maður ber fé eða fríðindi á mann eða heitir manni fé eða fríðindum til að hafa áhrif á hvort hann greiðir atkvæði eða hvernig hann greiðir atkvæði, eða ef maður sviptir mann eða ógnar manni með sviptingu atvinnu eða hlunninda í sama skyni.
  • Ef maður tekur fé eða fríðindi fyrir að greiða atkvæði, láta vera að greiða atkvæði eða að greiða atkvæði á ákveðinn hátt.

Eftirtalið varðar fangelsi allt að fjórum árum

  • Ef maður beitir þvingunarráðstöfunum eða ofbeldi eða hótunum um ofbeldi til að raska kosningafrelsi manns, annaðhvort á þann hátt að meina honum að greiða atkvæði eða neyða hann til að greiða atkvæði á annan veg en hann vill.
  • Ef maður vísvitandi rangfærir atkvæðagreiðslu með því að glata atkvæði, breyta atkvæði, skemma eða glata atkvæðasendingu, búa til kjörseðla er líkjast mjög þeim sem notaðir eru við kosningu og hagnýta þá sjálfur eða láta þá frá sér til þess að aðrir geti hagnýtt þá, rugla úrslit talningar atkvæða eða með öðrum hætti.

Allar sektir samkvæmt lögunum renna í ríkissjóð.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica