Framkvæmd þjóðaratkvæðagreiðslunnar
Framkvæmd þjóðaratkvæðagreiðslunnar er samvinnuverkefni nokkurra opinberra aðila. Má þar helst nefna innanríkisráðuneytið, Þjóðskrá Íslands, landskjörstjórn, utanríkisráðuneytið, sveitarstjórnir, sýslumenn og kjörstjórnir. Þessir aðilar skipta með sér verkum og vinna að því að heildarframkvæmd kosninga fari fram með skýrum og traustum hætti. Við þjóðaratkvæðagreiðsluna eins og við alþingiskosningar munu starfa nokkrar tegundir kjörstjórna, en það eru landskjörstjórn, yfirkjörstjórnir í kjördæmunum sex, undirkjörstjórnir og aðrar kjörstjórnir sveitarfélaga.
