Innanríkisráðuneytið

Innanríkisráðuneytið kemur að framkvæmd kosninga með margvíslegum hætti. Það annast m.a. gerð og dreifingu kjörgagna bæði utan kjörfundar og á kjörfundi.

Kjörstjórnir

Ákveða þóknun
Innanríkisráðherra ákveður þóknun fyrir störf landskjörstjórnar og yfirkjörstjórna.

Gerðabækur og innsigli
Innanríkisráðuneytið lætur í té og löggildir gerðabækur landskjörstjórnar og yfirkjörstjórnar. Einnig lætur ráðuneytið kjörstjórnum í té embættisinnsigli.

Kjördagur

Auglýsing þjóðaratkvæðagreiðslu
Innanríkisráðuneytinu ber að taka ákvörðun um dagsetningu atkvæðagreiðslunnar. Auglýsir innanríkisáðuneytið að því búnu hvenær þjóðaratkvæðagreiðslan fer fram í síðasta lagi einum mánuði fyrir atkvæðagreiðsluna. Þar skal einnig birta spurninguna sem lögð verður fyrir kjósendur.

Kjörskrár

Auglýsing um framlagningu kjörskráa
Innanríkisráðuneytinu ber að auglýsa framlagningu kjörskráa í fjölmiðlum í síðasta lagi 12 dögum fyrir kjördag. Þar á að koma fram að athugasemdir við kjörskrá skuli senda til hlutaðeigandi sveitarstjórna.

Kjörgögn

Kjörgögn fyrir utankjörfundaratkvæðagreiðslu
Innanríkisráðuneytið lætur í té kjörgögn fyrir utankjörfundaratkvæðagreiðslu og leiðbeiningar um tilhögun atkvæðagreiðslunnar. Kjörgögn þessi skulu vera fyrir hendi hjá þeim sem annast atkvæðagreiðslu utan kjörfundar, þ.e. hjá sýslumönnum og skipstjórum en utanríkisráðuneytið sér um að koma þessum kjörgögnum til kjörstjóra erlendis.
Kjörgögn sem notuð eru við utankjörfundaratkvæðagreiðslu eru: kjörseðill, kjörseðilsumslag, fylgibréf og sendiumslag.

Kjörgögn fyrir kjörfund á kjördag
Innanríkisráðuneytið lætur gera kjörseðla sem notaðir verða við þjóðaratkvæðagreiðsluna. Þá auglýsir það atkvæðagreiðsluna í síðasta lagi einum mánuði fyrir atkvæðagreiðsluna, einu sinni í Lögbirtingablaði og þrisvar sinnum í Ríkisútvarpi. Þar skal einnig birta spurninguna sem lögð verður fyrir kjósendur. Kjörseðlar skulu vera á haldgóðum pappír sem prent eða skrift sést ekki í gegnum, a.m.k. 125 g/m2 að þyngd.
Kjörseðlar sem notaðir verða á kjörfundi skal fullgera þannig að spurt verði á skýran hátt hvort lög nr. 13/2011 eigi að halda gildi sínu eða þau eigi að falla úr gildi. Kjörseðlana skal brjóta saman þannig að óprentaða hliðin snúi út. Ekki skal fullgera fleiri seðla en þá sem sendir verða undirkjörstjórnum og skal yfirkjörstjórn varast að láta óviðkomandi sjá seðlana áður en hún sendir þá frá sér.
Kjörseðlar skulu að jafnaði fullgerðir eigi síðar en sjö dögum fyrir kjördag og skal innanríkisráðuneytið þá senda þá til yfirkjörstjórna.

Stærð og gerð atkvæðakassa
Innanríkisráðherra setur nánari reglur um stærð og gerð atkvæðakassa en í kjörfundarstofu skal vera hæfilega stór atkvæðakassi sem sveitarstjórn leggur til. Atkvæðakassinn skal þannig búinn að ekki sé unnt að ná kjörseðli úr honum án þess að opna hann og þannig að unnt sé að læsa honum.

Atkvæðagreiðsla á kjörfundi

Kosningaleiðbeiningar ásamt sérútgáfu af lögum um kosningar til Alþingis
Innanríkisráðuneytið lætur kjörstjórnum í té kosningaleiðbeiningar sem hægt er að festa upp í kjörfundarstofu. Þá skal í hverri kjördeild vera til staðar sérprentun sem innanríkisráðuneytið gefur út með lögum um framkvæmd þjóðaratkvæðagreiðslna, lögum um kosningar til Alþingis og stjórnarskránni ásamt skýringum ef þurfa þykir.

Kosningaúrslit og talning

Að lokinni talningu atkvæða sendir yfirkjörstjórn landskjörstjórn eftirrit af gerðabók sinni ásamt þeim kjörseðlum sem ágreiningur hefur verið um milli umboðsmanna og yfirkjörstjórnar. Þegar landskjörstjórn hefur fengið í hendur eftirrit gerðabóka allra yfirkjörstjórna og ágreiningsseðla auglýsir hún með hæfilegum fyrirvara hvar og hvenær hún kemur saman til fundar til að úrskurða um gildi ágreiningsseðlanna og lýsa úrslitum þjóðaratkvæðagreiðslunnar til að umboðsmönnum gefist færi á að vera viðstaddir. Að því loknu tilkynnir landskjörstjórn ráðuneytinu um niðurstöður sínar.

Geymsla kjörskráa
Yfirkjörstjórn skal búa um allar kjörskrár í innsigluðum umbúðum og senda innanríkisráðuneytinu sem geymir þær í eitt ár, en að því búnu skal eyða þeim.

Auglýsingar

Innanríkisráðuneytið auglýsir úrslit atkvæðagreiðslunnar í Lögbirtingablaði og Ríkisútvarpi. Verði samþykkis synjað skal ráðuneytið auk þess birta sérstaka auglýsingu þess efnis í A-deild Stjórnartíðinda ekki seinna en tveimur dögum eftir að úrslit atkvæðagreiðslunnar liggja fyrir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica