Landskjörstjórn

Landskjörstjórn er kosin af Alþingi eftir hverjar almennar alþingiskosningar og í henni sitja fimm menn og jafnmargir til vara. Það er borgaraleg skylda að taka sæti í kjörstjórn. Við ákveðnar aðstæður getur kjörstjórnarmaður þurft að víkja sæti, t.d. ef hann er í kjöri til Alþingis eða ef til úrskurðar er mál, sem varðar maka hans eða ættingja. Landskjörstjórn skal eins og aðrar kjörstjórnir halda gerðabók og bóka gerðir sínar. Sjá einnig vef landskjörstjórnar, http://www.landskjor.is.

Meðal verkefna landskjörstjórnar eru eftirfarandi:


Kjörskrár í Reykjavíkurkjördæmum

Ákveður mörk fyrir íslenska ríkisborgara búsetta erlendis og þá sem eru óstaðsettir í hús í Reykjavík.

Við fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu 9. apríl um skilmála ríkisábyrgðar á láni út af ICESAVE-samningunum, eiga mörk kjördæma að vera þau sömu og við síðustu alþingiskosningarnar, sbr. 2. mgr. 2. gr. laga nr. 91/2010, um framkvæmd þjóðaratkvæðagreiðslna. Landskjörstjórn ályktaði 15. mars 2011 að auglýsing nr. 346/2009, sem fjallar um mörk kjördæmanna tveggja í Reykjavík við alþingiskosningarnar 25. apríl 2009, skuli fylgt við þjóðaratkvæðagreiðsluna. Gildir það einnig um fyrirmæli hennar um hvar mörkin skuli vera í hverjum mánuði, sbr. 2. mgr. 23. gr. laga nr. 24/2000, um kosningar til Alþingis, en þau ráða því hvar þeir, sem taka ber á kjörskrá í Reykjavík en búa erlendis eða eru óstaðsettir í hús í Reykjavík, greiða atkvæði.
Samkvæmt því greiða þeir sem tilheyra þessum hópum og eru fæddir 1. til 15. hvers mánaðar atkvæði í Reykjavíkurkjördæmi suður en þeir sem eru fæddir 16. dag mánaðar eða síðar í Reykjavíkurkjördæmi norður.

Umboðsmenn í hverju kjördæmi

Landskjörstjórn skipar umboðsmenn í hverju kjördæmi sem hafa það hlutverk að gæta ólíkra sjónarmiða við atkvæðagreiðsluna, talningu atkvæða og úrlausn ágreiningsmála.

Úrslit þjóðaratkvæðagreiðslu

Að lokinni talningu atkvæða sendir yfirkjörstjórn landskjörstjórn eftirrit af gerðabók sinni ásamt þeim kjörseðlum sem ágreiningur hefur verið um milli umboðsmanna og yfirkjörstjórnar. Þegar landskjörstjórn hefur fengið í hendur eftirrit gerðabóka allra yfirkjörstjórna og ágreiningsseðla auglýsir hún með hæfilegum fyrirvara hvar og hvenær hún kemur saman til fundar til að úrskurða um gildi ágreiningsseðlanna og lýsa úrslitum þjóðaratkvæðagreiðslunnar til að umboðsmönnum gefist færi á að vera viðstaddir. Að því loknu tilkynnir landskjörstjórn ráðuneytinu um niðurstöður sínar.

Kosningaúrslit í kjördæmum

Meiri hluti gildra atkvæða í atkvæðagreiðslunni ræður niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Þegar landskjörstjórn hefur fengið í hendur eftirrit gerðarbóka allra yfirkjörstjórna og ágreiningsseðla, auglýsir hún með hæfilegum fyrirvara hvar og hvenær hún kemur saman til fundar að úrskurða um gildi ágreiningsseðlanna og lýsa úrslitum þjóðaratkvæðagreiðslunnar til að umboðsmönnum gefist færi á að vera viðstaddir. Að því loknu tilkynnir landskjörstjórn innanríkisráðuneytinu um niðurstöður sínar.

 

Hverjir eiga sæti í landskjörstjórn?

Aðalmenn:
Freyr Ófeigsson formaður
Sigrún Benediktsdóttir varaformaður
Björn Jósef Arnviðarson
Ástráður Haraldsson
Jakob Björnsson

Varamenn:
Sigurjón Sveinsson
Hrafnhildur Stefánsdóttir
Anna Tryggvadóttir
Sigurður Kári Árnason
Linda Bentsdóttir

Aðsetur landskjörstjórnar er í Austurstræti 8-10, annarri hæð.
Ritari landskjörstjórnar er Þórhallur Vilhjálmsson, netfang:
thorhallurv@althingi.is
Sími: 563 0917 og 696 1389.

Póstfang:
Landskjörstjórn,
Austurstræti 8-10, 2. hæð,
101 Reykjavík.

Veffang:
www.landskjor.is


Þetta vefsvæði byggir á Eplica