Yfirkjörstjórnir
Í hverju kjördæmi er yfirkjörstjórn. Yfirkjörstjórnir er kosnar af Alþingi og er skipaðar fimm mönnum og fimm til vara. Það er borgaraleg skylda að taka sæti í kjörstjórn. Við ákveðnar aðstæður getur kjörstjórnarmaður þurft að víkja sæti, t.d. ef hann er í kjöri til Alþingis eða ef til úrskurðar er mál, sem varðar maka hans eða ættingja. Yfirkjörstjórnir skulu eins og aðrar kjörstjórnir halda gerðabækur og bóka gerðir sínar.
Formenn yfirkjörstjórna:
Norðvesturkjördæmi Suðvesturkjördæmi
Ríkarður Másson, sýslumaður, Jónas Þór Guðmundsson hrl.
Suðurgötu 1 Strandgötu 25
550 Sauðárkrókur 220 Hafnarfjörður
rikardurm@syslumenn.is jthg@simnet.is
gsm: 891 9154 gsm: 899 8121
Norðausturkjördæmi Reykjavíkurkjördæmi suður
Páll Hlöðvesson, skipatæknifr. Sveinn Sveinsson hrl.
Kringlumýri 11 Ármúla 21
600 Akureyri 108 Reykjavík
pallh@vma.is sveinn@logstofan.is
gsm: 892 6350 gsm: 866 6904
Suðurkjördæmi Reykjavíkurkjördæmi norður
Grímur Hergeirsson hdl. Katrín Theodórsdóttir hdl.
Austurvegi 6 Ásvallagötu 2,
800 Selfoss 101 Reykjavík
gh@jp.is ktheodors@logron.is
gsm: 862 1972 gsm: 692 0310
Kjörgögn
Kjörgögnum útdeilt
Um leið og yfirkjörstjórn hefur fengið kjörgögn í hendur frá innanríkisráðuneytinu útdeilir hún þeim til undirkjörstjórna. Hver undirkjörstjórn skal fá jafnmarga seðla og kjósendur eru á kjörskrá í hennar kjördeild og a.m.k. 10% umfram það. Þar sem kosnar eru sérstakar kjörstjórnir, þ.e. kjörstjórnir sem hafa umsjón með undirkjörstjórnum á stöðum þar sem kjördeildir eru fleiri en ein, er heimilt að afhenda þeim kjörseðla óflokkaða fyrir kjördeildir og annast þær þá afhendingu kjörseðlanna til undirkjörstjórna.
Hverri sendingu skal láta fylgja blindraspjöld, kosningaleiðbeiningar og sérprentun viðeigandi laga. Þá skulu fylgja með sendingunni sex sterk umslög með áprentaðri utanáskrift til yfirkjörstjórnar, þar sem prentað hefur verið í neðra framhorn á tvö þeirra Ónýtir seðlar, á tvö Ágreiningsseðlar og á tvö Afgangsseðlar. Auk þess skal yfirkjörstjórn láta fylgja stórt umslag með áprentaðri utanáskrift sinni og á efra framhorni nafn kjördeildarinnar og skal í það umslag leggja hin umslögin.
Við talningu atkvæða gerir svo yfirkjörstjórn grein fyrir þeim seðlum sem ekki hafa verið afgreiddir til undirkjörstjórna.
Ráðuneytið auglýsir úrslit atkvæðagreiðslunnar í Lögbirtingablaði og Ríkisútvarpi.
Verði samþykkis synjað í þjóðaratkvæðagreiðslunni skal ráðuneytið auk þess birta sérstaka auglýsingu þess efnis í A-deild Stjórnartíðinda ekki seinna en tveimur dögum eftir að úrslit atkvæðagreiðslunnar liggja fyrir.
Kosningum frestað og uppkosningar
Kjörseðlar komast ekki til skila
Ef kosning fer ekki fram vegna þess að kjörseðlasending kemst ekki til skila, skal yfirkjörstjórn endurnýja sendinguna svo fljótt sem verða má og kveður þá undirkjörstjórn til kjörfundar að nýju.
Kosningu frestað vegna veðurs
Undirkjörstjórn getur að fengnu samþykki yfirkjörstjórnar, frestað kosningu í kjördeild eftir að hún er hafin ef hún telur óviðráðanlegar ástæður eins og óveður hindra að kosning geti fram haldið. Skal þá kosning fara fram að nýju innan viku.
Atkvæðasending frá kjördeild kemst ekki til skila
Ef kosning hefur farið fram en atkvæðasending frá kjördeild kemst ekki til skila til yfirkjörstjórnar, lætur yfirkjörstjórn nýja kosningu fara fram í kjördeildinni innan viku.
