Í tilkynningu frá landskjörstjórn kemur fram að alls greiddu 175.114 manns atkvæði í þjóðaratkvæaðgreiðslunni 9. apríl. Niðurstaða talningarinnar var að 69.462 svöruðu því að lögin ættu að halda gildi en 103.207 að þau skyldu falla úr gildi. Ógild atkvæði voru 2.445, þar af 2.039 auðir seðlar en 406 atkvæði var ógilt af öðrum ástæðum.
Sveitarfélög auglýsa kjörstaði í þjóðaratkvæðagreiðslunni laugardaginn 9. apríl og mörg þeirra birta einnig kjörfundarupplýsingar á vefjum sínum.