Kjósendur
Hér er að finna gagnlegar upplýsingar bæði varðandi utankjörfundaratkvæðagreiðslu og kosningaathöfnina á kjördag. Þá er hér einnig að finna kafla um kjörskrá og þau atriði sem varða gerð hennar.
Atkvæðagreiðslan fer fram á sömu kjörstöðum og notast er við í almennum kosningum. Einstök sveitarfélög munu auglýsa nánar um kjörstaðina skömmu fyrir atkvæðagreiðsluna, m.a. hvenær þeir eru opnir, hvar þeir eru, hvernig skipt er í kjördeildir, o.fl. Kjósendur eru beðnir að kynna sér vel þær upplýsingar.
Kosningarrétt við þjóðaratkvæðagreiðsluna eiga þeir kjósendur sem eiga kosningarrétt til Alþingis, samkvæmt 2. gr. laga nr. 91/2010, sbr. 1. gr. laga nr. 24/2000.
